Bento og starfsfólk hans á hinum sívinsæla Tapasbar eru klár með jólamatseðilinn og hann er jafngirnilegur og frábær að sjá og annað sem ég hef borðað þar.
Matseðilinn kostar aðeins 5.990 kr. og upplifunin hefst með Faustino freyðivíni í fordrykk og síðan fylgja 7 gómsætir jólatapas í kjölfarið:
.Tvíreykt hangikjöts tartar með balsamik vinaigrette
.Rauðrófu- og piparrótargrafinn lax
.Spænsk marineruð síld með koriander og mangó
.Léttreykt andabringa með malt- og appelsínsósu
.Kalkúnabringa með spænskri „stuffing“ og calvados villisveppasósu
.Steiktur saltfiskur með sætri kartöflumús
.Hægelduð grísasíða með heimatilbúnu rauðkáli, fíkjum og fjallagrasasósu
Og í lokin tveir ljúfir eftirréttir
Rise a la mande með berjasaft
Ekta súkkulaðiterta
Fáum við like á þennan jólamatseðil?
Eldhúsið er opið:
17:00 til 23:30 sunnudaga til fimmtudaga
17:00 til 01:00 föstudaga og laugardaga
Og síminn er 551-2344.
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.