Starfsmenn í verslun Nýherja í Borgartúni voru heldur betur jólalegir til fara þegar þeir afgreiddu viðskiptavini sína á föstudag og er ekki annað að sjá en að þeim hafi líkað jakkafötin nokkuð vel.
Við veltum því fyrir okkur hvort að þeir muni klæðast þessum litríku fötum heima fyrir á aðfangadag.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.