Leikarinn Jude Law og fyrrverandi kærasta hans, Catherine Harding, eignuðust dóttur á mánudaginn síðastliðinn. Þetta staðfesti fjölmiðlafulltrúi Jude Law í viðtali við Daily Mail. Það var í október síðastliðnum sem parið tilkynnti að það ætti von á barni saman. Þrátt fyrir að hafa slitið samvistum er parið staðráðið í að standa saman að uppeldi dótturinnar.
Þetta er fyrsta barn Jude með hinni 23 ára gömlu Catherine, en fyrir á leikarinn þrjú börn með fyrrverandi eiginkonu sinni Sadie Frost. Soninn Rafferty 18 ára, dótturina Iris 13 ára og soninn Rudy 12 ára. Einnig á Jude dótturina Sophie, 5 ára með Samantha Burke.
Lestu fleiri skemmtilegar greinar á
Tengdar greinar:
11 ungar fyrirsætur sem eiga fræga foreldra
Íslandsvinurinn Justin Timberlake er sagður eiga von á sínu fyrsta barni
10 ástæður þess að það, að eiga ungt barn er eins og fangelsisvist
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.