Nýjasti myndaþáttur ljósmyndarans Mario Testino fyrir aprílútgáfu bandaríska Vogue mun vafalaust vekja mikla athygli. Það er enginn annar en poppstjarnan Justin Bieber sem situr fyrir í myndaþættinum ásamt þeim Kendall Jenner, Gigi Hadid, Cody Simpson og Ansel Elgort.
Sjá einnig: Kendall Jenner er nýjasta andlit Calvin Klein
Bieber og Kendall flott á sundlaugarbakkanum. Þetta gullfallega bikiní er úr smiðju Michael Kors.
Myndaþátturinn er innblásin af ,,socialites“ og lúxuslífinu í Los Angeles…
Við værum alveg til í að eignast Burberry ,,sherling“ jakkann sem Gigi klæðist.
Kendall ásamt leikaranum Ansel Elgort sem er líklega þekktastur fyrir leik sinn í myndinni The Fault of our Stars.
Sjá einnig: STAR: Kendall og Scott í sjóðheitu framhjáhaldi
Bieber birtist á tveimur myndum í myndaþættinum, og á báðum með Kendall Jenner.
Sjá einnig: Justin Bieber er tekjuhæsta stjarnan undir 30 ára
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.