Það er orðið opinbert! Justin Bieber og Selena Gomez eru hætt saman samkvæmt slúðursíðunni HollywoodLife.
Heimildamaður segir að sambandsslitin hafi komið til útaf því að þau séu bæði svo ofsalega upptekin bæði tvö. Annar aðili sem þekkir til þeirra segir að Selena sé miklu þroskaðri en Justin hafi verið of mikið partýdýr fyrir hana. Hún hafi viljað vera svolítið eins og mamma hans og ekki vera alltaf úti á lífinu.
Justin setti á Instagram um daginn orðið „lingse“ sem er stafarugl fyrir „single“ en eyddi því mjög fljótt út aftur, en þá hófust vangaveltur um hvort þau væru í raun hætt saman. Einnig var mikið talað um það í fjölmiðlum að hann hafi verið mikið að daðra við stúlkurnar á Victoria’s Secret tískysýningunni þar sem hann kom fram í vikunni.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.