Justin Timberlake er hæfileikaríkur, ungur maður. En hér að neðan bregður söngvarinn og leikarinn sér í furðulegasta gervi allra tíma; lime-ávöxt.
Ekki bara er Timberlake lime-ávöxtur, heldur er hann óþekkjanlegur. Og hrikalega fyndinn líka. Erfitt er að útskýra af hverju Timberlake er hér í hlutverki lúxus-lime ávaxtar en hann brá sér í gervið fyrir áfengisauglýsingu þar sem tekíla og lime-ávextir koma við sögu og svo lúxuslífið sem lime-ávextir augljóslega lifðu áður en nýja tegundin kom á markað.
Erfitt er að segja meira til um hvað gengur hér á – en Timberlake sýnir snilldartakta:
https://youtu.be/mtyZMVhBkVk
Sjá einnig: Fyrstu myndirnar af syni Justin Timberlake líta dagsins ljós
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.