Svo þú heldur að veðrið sé vont á Íslandi? Bíddu þar til þú sérð hvað krakkarnir í Kanada sprella með þegar frosthörkurnar keyrir úr hófi fram i febrúar hvert ár.
Þess er vert að geta að í norð-vestur Kanada er heita jarðlæki að finna, ekki ósvipaða Bláa Lóninu en svæðið nefnist Takhini Hot Springs og í ylvolgum jarðlæknum er einkar undarleg árleg samkeppni haldin í febrúar. Þessu greinir afþreyingarvefurinn Bored Panda frá og birtir með stórkostlegar myndir af vinningshöfunum þetta árið.
Samkeppin kallast THE HAIR FREEZING CONTEST eða frosna hársamkeppnin og gengur út á að bjóða baðunnendum að demba sér ofan í lækinn, bleyta hárið og forma það að vild meðan það frýs í nístingsköldum frosthörkunum. Svo skemmtilega vill nefnilega til að þó lækurinn sé frá 36 til 42 gráðu heitur – þá er ekki óeðlilegt að ætla að meðalhitinn sé kringum mínus 30 gráður.
Vinningurinn er ekki af verri endanum, en sá keppandi sem hreppir fyrsta sætið fær veglega fúlgu að launum – eða litlar 20.000 íslenskar krónur!
Er ekki hægt að innleiða þessa vitleysu á Íslandi?
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.