Rapparinn Kanye West fór á Twitter á dögunum og deildi óánægju sinni með snjallforrit fyrir börn þar sem hægt er að kaupa í sjálfu forritinu.
Sjá einnig: Nýjasta mynd Kim Kardashian af North West er einstaklega krúttleg
Dóttir Kanye, hin tveggja ára gamla North náði að eyða miklum pening í snjallforriti á Ipad en Kanye var brjálaður yfir því að það væri hægt.
Til fjandans með öll leikjaforrit sem bjóða uppá að hægt sé að versla í barnaleikjum.
Við lánuðum barninu okkar Ipad og á fimm mínútna fresti er hún búin að kaupa eitthvað nýtt!!!
Ef að leikur er búinn til fyrir tveggja ára, leyfið þeim þá bara að skemmta sér og gefið foreldrunum frí í guðanna bænum.
Sjá einnig: Kim Kardashian og North West í stíl á ströndinni
Spurning hvort að Kanye setji lög á snjallforrit fyrir börn ef hann nær að verða forseti.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.