Kanye West er þekktur fyrir gríðarlega íburðamikinn lífsstíl og hefur nú beðið aðdáendur sína á Twitter um að biðja fyrir sér vegna þess að hann sé kominn í hvorki meira né minna en 53 milljón dollara skuld.
Sjá einnig: Rosaleg tískusýning hjá Kanye West
Brjálað hefur verið að gera hjá söngvaranum og fatahönnuðinum eftir tískuvikuna, þar sem hann fór alla leið með nýjustu fatalínu sína Yeezy 3 og fékk hann gríðalega athygli fyrir framlag sitt til tískunnar. Kanye gefur þó út að hann er mjög stoltur af skuld sinni gefandi það sem hann er búinn að afreka fyrir vikið.
Það hefur verið brjálað að gera hjá honum síðustu daga og þurfti hann einnig að verja tengdamóður sína, Caitlyn Jenner, fyrir leiðindatali í hennar garð og sá Kanye til þess að allir vissu hvað væri í gangi með því að leyfa aðdáendum að fylgjast með framvindu mála á Twitter.
Sjá einnig:Kim Kardashian nánast óþekkjanleg á tískusýningu eiginmannsins
Sjá einnig: North West var í miklu stuði á tískusýningu föður síns
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.