Smjörkrem eitt og sér finnst mér æðislegt en karamellu-smjörkrem er ekki síðra. Þessi uppskrift kemur frá Eldhússystrum.
Karamellu-smjörkrem
110 gr smjör við stofuhita
2-3 msk karamella
300 gr flórsykur
Mjólk til að þynna kremið ef þess þarf
Best er að búa til karamelluna með smá fyrirvara til að hún sé alveg örugglega kólnuð áður en hún er notuð.
Þeytið smjörið þar til það er létt og ljóst. Bætið karamellunni saman við og þeytið svolítið meira. Bætið flórsykrinum við í litlum skömmtum og þeytið vel á milli. Ef kremið er kornótt þá er ekki búið að þeyta það nóg. Það fer svolítið eftir karamellunni sem notuð er hvort það þurfi að þynna kremið með mjólk. Karamellan sem ég notaði var nokkuð þykk og því þurfti ég að nota svolítið af mjólk. Bætið mjólkinni út í smá saman, ef sprauta á kreminu á köku þá má kremið ekki vera of þykkt en ekki það þunnt heldur að það leki allt til. (Hérna er vídeó frá foodnetwork sem sýnir hvernig tékkað er á réttri þykkt kremsins.)
Bakið cupcakes að eigin vali, ég notaði þessa uppskrift.
Skreytið kökur að vild 🙂 Ég notaði karamellu og saltflögur til að skreyta með.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.