Kardashian-veldið fer ört stækkandi þökk sé frægð og hæfileikum umboðsmanns Kardashian systranna, Kris Jenner, sem svo skemmtilega vill til að er líka mamma þeirra.
Þær eru með fatalínu fyrir konur og börn, snyrtivörur, hárvörur, ilmvötn og svo mætti lengi telja.
Sjá einnig: 19 ógnvekjandi kvenhetjur Disney – Myndir
Þekktur myndskreytari hefur mjög líklega hitt naglann á höfuðið hvað ætti að vera næsta skref fyrir þær systur en það verður forvitnilegt að sjá hvort Disney séu tilbúnir að endurgera nokkrar af ástsælustu teiknimyndum allra tíma með systrunum í aðalhlutverki.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.