Kate Middleton setti vefverslunina ASOS á hliðina síðastliðinn miðvikudag. Kate, sem ávallt er glæsileg til fara, sést oftar en ekki skarta flíkum sem almúginn hefur vel efni á – líkt og átti sér stað núna um miðbik vikunnar. Kate sást opinberlega í kjól úr ofangreindri vefverslun og það var eins og við manninn mælt – kjóllinn seldist upp á fáeinum mínútum.
Twitteróðir aðdáendur Middleton héldu vart vatni yfir kjólnum og það var fljótt að kvisast út í hvaða verslun hann væri fáanlegur. Svo margar heimsóknir fékk vefversluninn þennan morguninn að breskum fjölmiðlum þótti það fréttnæmt – að vísu þykir þeim flest sem við kemur Kate vera efni í frétt.
ASOS biður viðskiptavini sína að örvænta eigi – kjóllinn góði er væntanlegur aftur á lager í næstu viku. Þó þarf að hafa hraðar hendur – það er víst nú þegar kominn myndarlegur biðlisti.
Tengdar fréttir:
Kate Middleton: Farin að grána og tekur því fagnandi
Englandsdrottning vill betrumbæta klæðaburð Kate Middleton – Myndir
Myndir náðust af óléttubumbu Kate Middleton
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.