Eigum við kannski frekar að segja ,,Katy Perry og júllurnar á Kim Kardashian…” , þær eru jú aldrei langt undan. Enda ljómandi fínt par af júllum, ef svo má að orði komast. Dýrar í rekstri eins og lesa má betur um hérna.
Kim hefur verið ótrúlega áberandi á tískuvikunni í París. Ljóst hárið. Hvert ögrandi dressið á fætur öðru. Opinbert káf á Kanye. Og öfugt. Hún veit hvað fær hjarta slúðurpressunnar til þess að slá ótt og títt. Við getum gefið henni það.
Þremeningarnir gerðu sér glaðan dag á sýningu Givenchy á sunnudag. Þau sátu að vísu ekki saman en hittust í hressilegt spjall og myndatökur að lokinni sýningu.
Kim horfir ástleitnum augum á eiginmanninn. Hann horfir út í loftið og skartar sínum eina svip.
Mama Jenner var að sjálfsögðu á svæðinu líka. Slétt og fín.
Fínt þetta par.
Tengdar greinar:
Kim Kardashian í ögrandi og afar þröngum samfestingi á Brit-verðlaununum
Kim Kardashian notar barnið sitt sem fylgihlut
Átti Kim Kardashian ljótasta dressið á tískuvikunni í New York?
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.