Katy Perry og Orlando Bloom eru trúlofuð samkvæmt slúðurmiðlum erlendis. Þau birtu bæði myndir af þeim saman í dag. Á myndinni sést í risa hring á fingri Katy sem er eins og blóm. Við myndina sem Katy birti skrifaði hún „Full bloom“ og Orlando skrifaði við sína mynd „Lifetimes“.
Þykja þessar myndir sanna að Orlando hafi beðið Katy á Valentínusardaginn.
Katy og Orlando hafa verið að hittast síðan árið 2016.