Það hefur sennilega ekki farið framhjá neinum sem býr svo vel að hafa internetaðgang að tónlistarhátíðin Coachella fór fram um helgina. Jenner-systurnar hafa verið afar áberandi á hátíðinni ásamt öðrum stjörnum. Fregnir herma að Kendall Jenner hafi látið henda Amber Rose út úr sundlaugarpartíi á vegum McDonald´s og Chevrolet. En Amber hefur átt í hatrömmum deilum við Kardashian-systurnar um nokkurt skeið.
Sjá einnig: Þær keppast við að fækka fötum á Instagram
Amber Rose er fyrrverandi kærasta Kanye West.
Að sögn heimildarmanns á vegum InTouch á Amber að hafa plantað sér á svæði í teitinu sem frátekið var fyrir ungfrú Jenner og hennar fylgdarlið. Kendall mætti stuttu síðar á svæðið og var ekki sátt:
No way, this is not happening.
Var Amber beðin um að yfirgefa svæðið med det samme.
Það abbast enginn upp á Kardashian-klanið, það er á hreinu!
Sjá einnig: Þurfti að fara í margar sturtur áður en þau sváfu saman í fyrsta sinn