Það eru ótal girnilegar uppskriftir á Facebook síðunni Maturinn minn. Þessi er af ketó beyglum sem líta guðdómlega út:
Beyglur
Innihald:
1,5 bolli möndlumjöl (ég notaði bobs red mill en fína frá hagver er líka gott)
1 msk lyftiduft (ég nota vínsteins mögulega eru önnur betri)
2,5 bolla rifinn ost (ég notaði mix af því sem ég átti til)
4 msk rjómaost
2 stór egg
krydd ef fólk vill (þarf ekkert )
kryddið ofaná fæst ekki á Íslandi því miður, þannig sesamfræ eru líka góð ofaná
Sjá einnig: Ketó naan brauð með hvítlaukssmjöri
1. Blanda vel saman í skál möndlumjölinu og lyftiduftinu.
2. Setja ostana í aðra skál sem þolir örbylgjuna og bræða saman (ég gerði 1 mín hrærði vel og svo aðra mín)
3. Blanda mjölinu og egginu vel saman við ostinn passa hafa ekki ostaklumpa (finnst sjálfri snilld nota latex hanska í þetta og hnoða en berar hendur virka vel en er smá subbulegt :))
4. Úr þessu fást 6 beyglur (eða 4 stórar) móta þær á bökunarplötu (ég gerði bara bollur flatti smá út og notaði lítið glast til gera gatið og mótaði svo eins og ég vildi hafa þær
5. Baka við 200° í ca 12-15 mín eða þar til gullbrúnar 🙂
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.