Khloe Kardashian er komin með kærasta og sá heppni heitir Tristan Thompson. Hún setti eldheitan kossaflens með Tristan á Snapchat hjá sér þegar þau voru úti að borða með Kourtney, en fyrst sást til þeirra vera að knúsast á tónleikum með Kanye West á dögunum.
Sjá einnig: Khloe er grennri en nokkru sinni fyrr
Tristan er 25 ára gamall og er NBA leikmaður hjá Cleveland Cavaliers og talið er að þau hafi byrjað að hittast í ágúst. Svo virðist sem Khloe sé afar hrifin af körfuboltaleikmönnum, þar sem fyrrverandi eiginmaður hennar Lamar Odom var einn slíkur, rétt eins og James Harden, sem hún hætti að hitta í janúar á þessu ári. James Harden hafði verið að halda fram hjá henni alla þá 7 mánuði sem þau voru saman, svo það er ekki furða að það samband endaði
Khloe gefur þó ekki upp vonina og er að leyfa sér að lifa og njóta lífsins. Henni lýst afar vel á körfuboltastrákinn, svo það verður forvitnilegt að sjá hvernig annars opinbera ástarsamband hennar muni ganga á næstuni.
Sjá einnig:Khloe Kardashian segir frá krabbameininu
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.