Khloe Kardashian og Lamar Odom gengu frá skilnaði sínum í júli á þessu ári, en raunveruleikastjarnan hefur enn miklar tilfinningar til NBA leikmannskins. Lamar liggur í dái á sjúkrahúsi, tengdur við öndunarvél, eftir að hafa fundist meðvitundarlaus í vændishúsi. Hann hafði verið þar í fjóra daga með stúlkum og samkvæmt heimildum, verið að nota mikið magn af lífrænum viagra töflum. Ástand hans er lífshættulegt.
Sjá einnig:Lamar Odom króaði Khloe Kardashian af og hreytti í hana ljótum orðum
Þegar Khloe frétti af óförum Lamar, rauk hún ásamt fjölskyldu sinni á sjúkrahúsið til að vera við hlið hans og er hún í öngum sínum. Ein vændiskonan fann hann liggjandi á grúfu og kallaði á vinnuveitanda sinn, sem kom og sneri Lamar við og sá að froða lak út um munn og nef hans. Starfsmenn hennar fóru á vændishúsið til að ná í eigur Lamar og liggja ættingjar og vinir á bæn um að hann muni ná sér.
Sjá einnig: Khloe Kardashian og Lamar Odom skrifa undir skilnaðarpappíra
Parið skildi opinberlega í júlí eftir langt skilnaðartímabil.
Khloe var stödd í nærfatamyndatöku nokkrum klukkustundum áður en hún fékk símtalið um að Lamar lægi þungt haldinn á spítala, eftir að hafa fundist meðvitundarlaus í vændishúsi.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.