Raunveruleikastjarnan Khloe Kardashian birti myndband í snjallforritinu sínu Khloé þar sem hún var að spila leikinn „True or False“. Khloe spilaði leikinn við förðunarfræðinginn sinn Hrush Achemyan og hárgreiðslukonuna sína Jen Atkin.
Sjá einnig: Khloe Kardashian lætur fjarlægja appelsínuhúð af rassinum – Á meðan Kim & Kendall horfa á
Stúlkurnar áttu að skiptast á að draga eitt spjald með ákveðnu viðfangsefni og síðan áttu þær að segja sögu tengdu því. Hinar stúlkurnar áttu síðan giska hvort sagan væru sönn eða lygi.
Þegar Khloe dró spjald merktu svefnherbergi sagði hún frá því þegar hún gekk inn á fyrrverandi kærasta sinn í rúminu með tveimur stúlkum að stunda kynlíf. Hann hafði þá kynnst þessum stúlkum sama dag í verslunarmiðstöð og dregið þær með sér heim.
Sjá einnig: Khloe Kardashian elskar að sýna tónaða kroppinn sinn
Þær Jen og Hrush trúðu ekki ekki sögunni en Khloe sagði að hún væri sönn. Raunveruleikastjarnan greindi þó ekki frá því um hvaða fyrrverandi kærasta hún var að ræða.
https://www.youtube.com/watch?v=rgNjqAoSz5s&ps=docs
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.