Raunveruleikastjarnan Khloe Kardashian vill meina að besta hefndin sé stórkostlegur líkami.
Khloe gaf aðdáendum sínum á vefsíðunni sinni, khloewithak.com, nokkur góð ráð þegar kemur að því að halda áfram eftir erfið sambandsslit.
Sjá einnig: Khloe Kardashian hætti að borða mjólkurvörur til að grennast
Ég sagði við Rob fyrir nokkrum árum: besta hefndin er klikkaður líkami. Þetta er smá kjánalegt en samt satt. Það er í raun engir ókostir við það að vinna úr tilfinningum sínum í ræktinni. Þér líður betur og útkoman verður rosalegur líkami sem mun gera það að verkum að þínum fyrrverandi á eftir að finnast ennþá erfiðara að horfa á eftir þér.
Khloe sagðist ekki vera neinn sérfræðingur í þessum málum en að hún gæti deilt sinni reynslu eftir skilnað sinn við körfuboltakappann Lamar Odom.
Sjá einnig: Khloe Kardashian situr fyrir nakin
Fólk spyr mikið út í það hvernig Khloe hélt áfram með líf sitt eftir að hjónaband hennar og Lamar fór í vaskinn.
Ég byrjaði að breyta líkama mínum og sjálfri mér eftir það sem var líklega lægsti punkturinn í lífi mínu, fólk sér mig sem einhvern sérfræðing í þessum málum. Ég þykist ekki vera sérfræðingur í þessu en ég get þó deilt einhverjum upplýsingum með ykkur.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.