Nýjasta þáttaröðin um Kardashian fjölskylduna fór í loftið á sunnudagskvöldið síðasta og lofar hún góðu. Í næsta þætti sem verður sýndur næsta sunnudagskvöld á sjónvarpsstöðinni E! kennir Khloe dóttir Kris Jenner henni að nota smokk.
Sjá einnig: „Til strákanna sem segja; ég er með of stórt typpi fyrir smokka – FÁIÐ YKKUR SÆTI”
Í sýnishorni úr þættinum er Khloe sem er 31 árs að segja sextugri móður sinni að allir strákar eigi að hafa þann mannasið að setja sjálfur smokkinn á typpið á sér. Eftir þessa lexíu tekur Khloe sig til og sýnir Kris til verka með því að setja smokk á gúrku.
Sjá einnig: Khloe Kardashian segist stunda fjölkvæni
Kris er 6 barna móðir svo það er spurning hvort það sé ekki kominn tími að hún læri að nota getnaðarvarnir.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.