Raunveruleikastjarnan Khloe Kardashian sagði í viðtali við spjallþáttastjórnandann Ellen Degeneres að hún sé eiginlega partur af fjölkvæni. Khloe er ennþá gift Lamar Odom sem hún er þó ekki með en hún er í ástarsambandi með körfuboltakappanum James Harden.
Khloe hætti við að skilja við eiginmann sinn Lamar Odom þegar hann féll í dá á hóruhúsi. Khloe og Lamar höfðu ekki verið saman í nokkur ár en skilnaðurinn þeirra var ekki farinn í gegn og gat því Khloe dregið hann til baka þegar þetta gerðist. Lamar var í dái í þrjá eftir að hafa tekið of stóran skammt af eiturlyfjum og er ljóst að hann á langt í það að ná fullri heilsu aftur ef hann verður það einhvern tímann.
Khloe og Lamar hættu við skilnaðinn til þess að geta tekið ákvaðarnir fyrir Lamar á sjúkrahúsinu ekki til gefa hjónabandinu þeirra annað tækifæri.
https://www.youtube.com/watch?v=ne6LtIMQ_nA&ps=docs
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.