Khloe Kardashian var á klúbbarölti í Las Vegas á föstudagskvöldið. Svona eins og maður gerir. Við fjölluðum um það fyrir stuttu hversu dugleg Khloe hefur verið í ræktinni undanfarið. Hvað sem því líður þá tjaldaði hún svo sannarlega öllu til þennan ágæta föstudag – níðþröngur og nánast gegnsær kjóllinn sýndi vel föngulegan vöxt hennar. Að ógleymdum bossanum – hann er af Kardashian-ætt, það er á hreinu.
Sjá einnig: Hver er eiginlega faðir Khloe Kardashian?
Sjá einnig: Khloe Kardashian ótrúlega falleg í Forte di Belvedere