Systurnar Khloe, Kendall og Kylie ákváðu að fara í dulargervi og skella sér í túristarútu í Hollywood. Khloe og Kendall voru gríðarlega ólíkar sjálfum sér, enda með andlitið hulið grímu og höfðu á sér hárkollu sem var svo langt frá þeirra eigin hárstíl. Kylie var þó aðallega með breytt nef og hárkollu.
Sjá einnig: Khloe: „Frelsum kameltána!“
Khloe hafði þó líklegast vinninginn, því hún fór alla leið í leiknum og skellti sér í gervi 79 ára gamallar konu frá Nýju Mexico, sem var með suðrænan hreim og dálítið af kynþáttahatri. Það eina sem hefði getað komið upp um hana voru unglegar hendur hennar og óaðfinnanlegu neglurnar. Systurnar tóku þetta allt saman upp á Snapchat og skældu úr hlátri á meðan þær tóku upp uppátæki sitt.
Sjá einnig: Fyndið: Hún vaknar og heldur að hún er Kylie Jenner
Sjá einnig: Kendall er ekkert fyrir illa lyktandi handakrika
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.