Því miður eru þær fréttir um að Kim Kardashian sé á landinu eða hafi verið á landinu rangar. Þeir sem eru með raunveruleika stjörnuna á Snapchat ættu ekki að vera í neinum efa með það hvar stjarnan er stödd.
Sjá einnig: #thighreading: Nýtt æði þar sem konur mynda slitförin sín
Á laugardaginn hélt Kim upp á svokallaða barnasturtu eða babyshower eins og það kallast á ensku fyrir vinkonu sína Chrissy Teigen. Gestir fengu að gæða sér á McDonald’s og Taco Bell en í eftirrétt var kaka skreytt með andliti eiginmanns Chrissy, John Legend.
Veislan var stjörnum prýdd en Khloe og Kourtney mættu ásamt móður þeirra Kris Jenner. Einnig mætti leikkonan Jenna Dewan Tatum, íþróttafréttamaðurinn Erin Andrews og Malika Haqq.
Sjá einnig: GOTT MÚV: Chrissy Teigen opinberar slitförin ófeimin á Instagram
Veislan var haldin í húsi Kanye og Kris sem þau eru með á sölu en hafa aldrei búið í. Þau byrjuðu að gera upp húsið en hættu við að flytja inn í það og keyptu sér annað hús sem verið er að gera upp. Þetta hús fór því strax á sölu um leið og búið var að gera húsið upp.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.