Það þarf varla að kynna Kim Kardashian, en það virðist vera alveg sama hvað þessi 34 ára gamla raunveruleikastjarna gerir, þá fer það á síður vefmiðlanna.
Á föstudaginn fór Kim í verslunarleiðangur í Beverly Hills í þröngum gráum kjól sem vakti gífurlega mikla athygli þar sem kjóllinn sýndi vel glæsilegar línur stjörnunnar. Afturendi Kim fékk einnig að njóta sín í þessum einfalda American Apparel kjól.
Sjá einnig: Kim Kardashian: Sjóðheit í latex kjól komin þrjá mánuði á leið
Kim viðurkenndi það þó fyrr í mánuðinum að hún klæddist tvennum aðhaldsbuxum þegar hún stigi út í níðþröngum fötum en hún er komin þrjá mánuði á leið með sitt annað barn. Fyrrverandi stílistinn sagði einnig að henni þætti það oft klikkun hvað hún legði mikið á sig fyrir útlitið.
Sjá einnig: Kim Kardashian á von á öðru barni sínu
Sjá einnig: Kim Kardashian þjáist af skelfilegri morgunógleði
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.