Hin ófríska Kim Kardashian var í myndatöku fyrir arabíska tímaritið Hia en hún mun prýða forsíðu næsta tölublaðs þeirra. Kim er þekkt fyrir sitt dökka útlit en hún er hálf armensk og hálf amerísk og hentar hún því mjög vel í þennan tískuþátt.
Kim sagði á Twitter:
Hia er leiðandi tímarit í hátísku í Arabalöndunum og það er mér sannur heiður að fá að vera á forsíðu blaðsins.
Kim var í fötum eftir hönnuðinn Stéphane Rolland.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.