Kim er ekki þekkt fyrir annað en að fara alla leið þegar kemur að viðburðum. Í þetta skiptið var Kim í sérstakri stjörnuprýddri De Grisogono veislu, sem haldin var í Frönsku Rivierunni.
Sjá einnig: Kim var vakin á mæðradaginn með strengjasveit
Kim var í fylgi með Fawas Gruosi, sem er framkvæmdastjóri De Grisogono og var hún íklædd skarti frá toppi til táar. Kjóll hennar var alsettur glitrandi steinum og var Fawas afar lukkulegur að sjá með þessa frægu og fallegu konu upp á arminn.
Sjá einnig: Kim í silfri og Kanye með linsur á Met Gala
Gríðarlega þétt dagskrá er hjá Kim þessa dagana og var hún nýkomin úr flugi frá New York, þar sem hún hafði verið viðstödd athöfn þar í borg deginum áður. Ekki bar á þreytu hjá Kim eftir 8 klukkustunda flug og skartaði hún sínu fegursta bæði á dreglinum og uppi á armi Fawas Gruosi.
Sjá einnig: Skemmtilegar myndir af Kim og fylgdarliði í Bláa Lóninu
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.