Kim var stödd á Punta Mita í Mexíkó á dögunum og naut hún þess í botn að klæðast allskyns efnislitlum fötum. Til að byrja með lét hún sjá sig með börnin sín North og Saint á ströndinni en nú var hún að slaka á með vinum og vitanlega ljósmyndurum.
Sjá einnig: Kim hefur alltof mikið að gera
Kim tók einnig aðstoðarkonu sína Steffanie Sheppard með og nýju vinkonu sína, módelið Jasmine Sanders, með sér, en Jasmine hefur gefið sjálfri sér nafnið gyllta barbídúkkan.
Ekki bar á öðru en að Kim væri hæstánægð með líkama sinn eftir að hafa farið í laser svuntuaðgerð og haldið sig grimmt við Atkins mataræðið og því vitanlega við hæfi að hún léti smella af sér einhverjum góðum ljósmyndum í tilefni þess.
Sjá einnig:Kim fer með börnin sín á ströndina
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.