Hún hefur loksins viðurkennt að fara til læknis og láta sprauta í rassinn á sér en segir þó að það sé einungis í þeim tilgangi að láta sprauta sig við psoriasis.
Sjá einnig: Kim Kardashian – „Mér líður eins og ég sé photoshoppuð!“
Kim vissi fyrst að hún væri með húðsjúkdóminn þegar móðir hennar Kris tók eftir blettunum á fótum hennar og fór hún og talaði við nágranna sinn sem var húðlæknir á Cedar spítalanum. Hann sagði henni að það væru miklar líkur á því að hún fengi stóra dæld í rassinn á sér vegna sjúkdómsins, en það varð til þess að Kim ákvað að láta sprauta sig. Eitt sinn sást til hennar koma út af stofu eftir að hafa farið í sprautu og þar með spratt sá orðrómur og hún væri með fylllingar í rassinum, eða það halda sumir.
Næst langar Kim að gangast undir laseraðgerð sem yngir upp hendur hendur hennar og við fáum eflaust að sjá smjörþefinn af þeirri meðferð.
Sjá einnig: Kim kafmáluð í ræktinni
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.