Kim Kardashian hefur aldrei verið þekkt fyrir að vera dúðuð í fötum. Hún er stödd á Miami í Flórída og sést hefur til hennar fremur fáklæddri upp á síðkastið þar í borg. Hún lét þó ekki þar við liggja og fann sér til dundurs eitt kvöldið að aflæðast og taka sjálfsmynd af sér alsnaktri í spegi á hótelherbergi sínu.
Sjá einnig: Kim Kardashian dillar á sér rassinum á Snapchat
Hún lýsir því yfir að hún hafi eingöngu verið að deila þessari ljósmynd, svo fólk og fylgjendur hennar gætu barið augum brúnku hennar, sem hún var nýbúin að fá sér.
Kim deildi myndinni á Snapchat, Instagram og Twitter og skrifaði hún undir að hún hafi verið að fá sér miðnætur brúnkusprey. Það er sældarlíf hjá Kim á þeirri stundu, rétt eins og aðra daga.
Sjá einnig:Kim sýnir brjóstin í New York
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.