Hin breska Grace Neutral (26) er mjög vinsæl á samfélagsmiðlum og vekur óskipta athygli fyrir einstakt útlit sitt. Grace hefur breytt útliti sínu mjög mikið en hún hefur meðal annars látið lita á sér augun, breyta eyrum sínum, kljúfa á sér tunguna, auk þess hefur hún látið flúra mikið á sér líkamann. Hún er með yfir 300 þúsund fylgjendur á Instagram og er komin með fyrirsætusamning hjá hönnuðinum Ashley Williams.
Grace segist hafa átt mjög einmanalega æsku og hún segir að líkamsbreytingar hennar séu leið til þess að fallnar að spegla sál hennar. „Mér leið alltaf eins og ég væri ein í heiminum þegar ég var að alast upp og það er fyrst núna sem ég er að kynnast sjálfri mér. Það er ógnvænlegt, já, en ég veit að ég væri mun óhamingjusamari ef ég liti út eins og ég gerði áður,“ segir Grace.
Unga konan segist ekki hafa neitt á móti hefðbundnu og almennu útliti: „Það er ekki það að mér finnist Kim Kardashian ekki vera falleg, hún er það, en það er ekkert við svoleiðis útlit sem endurspeglar mig. Ég kann að meta það en ég vel ekki þetta útlit fyrir mig. Að sama skapi er ég viss um að Kim vill ekki líta út eins og ég.“
Grace hóf breytingar á líkama sínum þegar hún var aðeins 21 árs. Þá lét hún kljúfa tungu sína og segir hún það hafa verið mjög sársaukafullt. „Eftir að ég lét kljúfa tunguna varð ég að læra að tala aftur og ég var smámælt mjög lengi,“ segir Grace og bætir við: „Það eru tveir vöðvar í tungunni sem eru tengdir saman en það er allt í lagi að taka þá í sundur.“
Sjá einnig: 11 verulega truflandi myndir úr fegurðarsamkeppnum barna
Grace er búin að láta fjarlægja naflann sinn
Sjá einnig: Litla afbrýðisama stúlkan lærir smá lexíu – Myndband
Sjá einnig: Unga stúlkan gjörbreytir degi blinda mannsins
Hér eru myndir af Grace áður en hún fór í svona miklar breytingar á útliti sínu:
Heimildir: Youtube og Sang Bleu Magazine.