Þessi kisa kom sér fyrir í kerru fyrir utan Vindakór 6, í gærkvöld og gaut kettlingum. Kettlingarnir voru 5 en tveir af þeim dóu á fyrsta sólarhringnum.
Ef einhver hér kannast við þessa kisu má endilega senda okkur póst á ritstjorn@hun.is og við komum skilaboðunum áleiðis.
Kisan er komin fósturheimili tímabundið á meðan eigendanna er leitað.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.