Ég rakst á þennan guðdómlega girnilega kjúklingarétt á einhverju ferðalagi um internetið í vikunni. Rétturinn kemur af blogginu hennar Margrétar Lindu – Ljúft í munn og maga. Ég mæli með heimsókn þangað, þó ekki á tóman maga.
Kjúklingur á pönnu með sólþurrkuðum tómötum og hvítlauk
800 gr kjúklingabringur, skornar í bita
1 krukka sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
1 rauð paprika, söxuð
1 græn paprika, söxuð
1 scarlet laukur
1/2 meðalstór haus af spergilkáli, skorinn niður
2 dl hvítvín
3 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
1 peli matreiðslurjómi
salt og svartur pipar
kjúklingakraftur eftir smekk
- Steikið laukinn, sólþurrkuðu tómatana og grænmetið – takið til hliðar og geymið. Steikið síðan kjúklinginn á pönnunni og kryddið. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn er grænmetinu bætt út á og steikt um stund. Hvítvínið er svo sett út í og soðið niður í um það bil 5 mínutur. Þá er rjómanum hellt út á og látið malla um stund. Smakkað til með salti og pipar og kjúklingakrafti, ég notaði sirka teskeið af Tasty krafti .
- Gott að bera fram með hýðishrísgrjónum og salati
Tengdar greinar:
Kjúklingur með grænmeti, núðlum og cashewhnetum að hætti Café Sigrún
Vikumatseðill: Krakkavænn kornflexkjúklingur, holl og himnesk súkkulaðikaka
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.