Þessi æðislega uppskrift kemur frá Café Sigrún
Fyrir 4-5
Innihald
- 375 g þykkar hrísgrjónanúðlur eða aðrar núðlur sem ykkur finnst góðar
- Hálfur stór kjúklingur, helst grillaður
- 1 stór gulrót
- 2 paprikur (rauð og gul)
- 175 g mangetout (flatar, grænar belgbaunir sem maður getur borðað í hýðinu)
- 175 g baby mais
- 75 g cashewhnetur
- 2 vorlaukar
- 1 tsk sesamolía
- 1 msk kókosolía
- Fersk coriander lauf til að skreyta með (má sleppa)
Fyrir sósuna:
- 450 ml af vatni
- 1 gerlaus grænmetisteningur
- 1,5 msk maísmjöl (eða kartöflumjöl eða arrow root)
- 6 msk tamarisósa
- 1 tsk Tabasco sósa (eða klípa chilipipar eða cayenne pipar )
- 5 stevíadropar eða 2 msk agavesíróp
- 1 hvítlauksrif, saxað smátt eða marinn
- ferskt engifer, biti á stærð við jarðarber
Aðferð
- Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum og sigtið allt vatn frá. Látið í nokkrar sekúndur undir kalt, rennandi vatn. Setjið til hliðar.
- Hitið pönnuna (án olíu) og þurrristið cashewhneturnar í nokkrar mínútur eða þangað til þær eru orðnar gullbrúnar. Setjið til hliðar.
- Undirbúið sósuna: Setjið 450 ml af vatni í lítinn pott ásamt grænmetisteningnum og hitið aðeins þannig að teningurinn leysist upp. Blandið saman maísmjöli, tamarisósu, tabasco sósu og stevíadropum (eða agavesírópi) í litla skál og hellið í pottinn. Afhýðið engifer og hvítlauk og saxið smátt. Setjið allt í pottinn og hitið í um 30 mínútur við vægan hita eða þangað til sósan fer aðeins að þykkna aðeins.
- Undirbúið nú annað hráefni: Ef þið notið ekki grillaðan kjúkling, hitið þá 1 tsk kókosolíu ásamt vatni á pönnu. Steikið kjúklinginn (skinnið ekki notað). Kælið og rífið kjötið í strimla. Setjið til hliðar.
- Afhýðið gulrótina og skerið í mjóa strimla.
- Skerið paprikur í helminga og fræhreinsið. Skerið svo í mjóar ræmur.
- Saxið vorlaukana smátt (ljósgrænu og dökkgrænu hlutarnir notaðir).
- Hitið wok pönnu eða stóra pönnu þangað til hún verður brennandi heit.
- Takið til allt hráefni sem á að fara á pönnuna og setjið í litlar skálar nálægt eldavélinni.
- Setjið 1 msk af kókosolíu á pönnuna og hitið vel. Það ætti að rjúka úr pönnunni.
- Hitið gulrótarstrimlana í um 2 mínútur. Bætið papriku, mangetout og babymais saman við og hitið vel. Ef vantar vökva, notið þá vatn.
- Hrærið í sósunni og hellið henni yfir pönnuna. Sjóðið í um 3-4 mínútur.
- Bætið núðlunum og kjúklingnum við og hitið vel í 3 mínútur.
- Bætið cashewhnetunum við og blandið öllu vel saman.
- Berið fram í djúpum diskum ásamt prjónum. Hellið nokkrum dropum af sesamolíu yfir hverja skál. Skreytið með corianderlaufum ef þið viljið.
Café Sigrún á Facebook. Endilega líkið við hana svo þið fáið allar nýjustu fréttir frá henni.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.