Kjúklingur með grænmeti, núðlum og cashewhnetum
fyrir 4-5
Innihald
• 375 g þykkar hrísgrjónanúðlur eða aðrar núðlur sem ykkur finnst góðar
• Hálfur stór kjúklingur, helst grillaður
• 1 stór gulrót, skorin í mjóar ræmur
• 2 paprikur (rauð og gul) skornar í mjóar ræmur
• 175 g mangetout (flatar, grænar belgbaunir sem maður getur borðað í hýðinu)
• 175 g baby mais
• 75 g cashewhnetur, þurrristaðar á pönnu
• 2 vorlaukar, saxaðir smátt
• 1 tsk sesamolía
• 1 msk kókosolía
• Fersk coriander lauf til að skreyta með (má sleppa)
Fyrir sósuna:
• 1,5 msk maísmjöl (eða kartöflumjöl en einnig má nota arrow root)
• 1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt (eða marinn)
• 2 tsk ferskt engifer, saxað smátt
• 2 msk agavesíróp
• 6 msk tamarisósa
• 1 tsk Tabasco sósa (má sleppa og nota þá smá klípu af chilipipar eða cayenne pipar í staðinn)
• 1 gerlaus grænmetisteningur
• 450 ml af vatni
Aðferð
1. Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum og sigtið allt vatn frá. Látið í nokkrar sekúndur undir kalt, rennandi vatn. Setjið til hliðar.
2. Hitið pönnuna (án olíu) og þurrristið cashewhneturnar í nokkrar mínútur eða þangað til þær eru orðnar gullbrúnar. Setjið til hliðar.
3. Undirbúið sósuna: Setjið 450 ml af vatni í lítinn pott ásamt grænmetisteningnum og hitið aðeins þannig að teningurinn leysist upp. Blandið saman maísmjöli, tamarisósu, tabasco sósu og agavesírópi í litla skál og hellið í pottinn. Afhýðið engifer og hvítlauk og saxið smátt. Setjið allt í pottinn og hitið í um 30 mínútur við vægan hita eða þangað til sósan fer aðeins að þykkna (verður eins og þunnt síróp).
4. Undirbúið nú annað hráefni: Ef þið notið ekki grillaðan kjúkling, hitið þá 1 tsk kókosolíu ásamt vatni á pönnu. Steikið kjúklinginn (skinnið ekki notað). Kælið og rífið kjötið í strimla. Setjið til hliðar.
5. Afhýðið gulrótina og skerið í mjóa strimla.
6. Skerið paprikur í helminga og fræhreinsið. Skerið svo í mjóar ræmur.
7. Saxið vorlaukana smátt (ljósgræni og dökkgræni hlutinn notaðir).
8. Hitið wok pönnu eða stóra pönnu þangað til hún verður brennandi heit.
9. Takið til allt hráefni sem á að fara á pönnuna og setjið í litlar skálar nálægt eldavélinni.
10. Setjið 1 msk af kókosolíu á pönnuna og hitið vel. Það ætti að rjúka úr pönnunni.
11. Hitið gulrótarstrimlana í um 2 mínútur. Bætið papriku, mangetout og babymais saman við og hitið vel. Ef vantar vökva, notið þá vatn.
12. Hrærið í sósunni og hellið henni yfir pönnuna.
13. Sjóðið í um 3-4 mínútur.
14. Bætið núðlunum og kjúklingnum við og hitið vel í 3 mínútur.
15. Bætið cashewhnetunum við og blandið öllu vel saman.
16. Berið fram í djúpum diskum ásamt prjónum.
17. Hellið nokkrum dropum af sesamolíu yfir hverja skál.
18. Skreytið með corianderlaufum ef þið viljið.
Gott að hafa í huga
• Það er hægt að sleppa kjúklingnum og setja t.d. rækjur, kúrbít, eggaldin, sveppi (ferska eða þurrkaða) eða marinerað, stíft tofu.
• Gerlausir grænmetisteningar fást í heilsubúðum (og stærri matvöruverslunum). Einnig má nota venjulega grænmetisteninga.
• Nota má sojasósu í staðinn fyrir tamarisósu en athugið að sojasósan inniheldur hveiti.
• Ef kókosolían er hörð má stinga krukkunni í heitt vatn í nokkrar mínútur þar til hún verður fljótandi.
• Nota má aðra olíu en kókosolíu, t.d. vínberjakjarnaolíu eða repjuolíu.
Birt með góðfúslegu leyfi Café Sigrún
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.