Leikkonan fimmtuga Demi Moore sem var gift leikaranum Ashton Kutcher virðist vera komin með annan ungan mann upp á arminn.
Hún neitaði því staðfastlega fyrir ekki svo löngu síðan að hún væri komin með kærasta en nú er hún byrjuð með Hard Rock Café erfingjanum Harry Morton. Þau sáust í Los Angeles á dögunum þar sem þau horfðust í augu og héldust í hendur og virtust mjög ástfangin. En hvur veit?!