Þegar flest okkar hugsa um að baka brauð, þá hugsum við okkur um öll þau innihaldsefni sem við myndum kaupa í búðinni til þess að útbúa okkar eigið brauð. Þessi kona, eitilharði feminístinn að nafni Starvi, ákvað heldur að gera fremur óvanalega tilraun með sinn brauðbakstur.
Í mörgum brauðuppskriftum er ger eða eins og það heitir á ensku „yeast“, en kona þessi ákvað að vera fremur frumleg og nota í brauðið útferð úr leggöngum sínum því hún er með sveppasýkingu (en sveppasýking er á ensku yeast infection).
Sjá einnig: Útferð og/eða sveppasýking
Það þarf varla að taka það fram að þessar tvær tegundir af „yeast“ er alls ekki það sama og gæti aumingja konan endað með sveppasýkingu í munni. Hún hefur fengið mikil og hörð viðbrögð á Twitter vegna þessa uppátækis en hún lætur það ekki á sig fá.
Sjá einnig:Að lækna femínista :
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.