Einu sinni var korkur bara notaður í vínflöskur og var mjög vinsæll sem gólfefni á tímabili en í dag er fólk farið að velja meira parket eða flísar frekar en korkinn. En Corkway er fyrirtæki í Portúgal sem framleiðir ótrúlega flottar vörur úr korki.
Korkurinn er ekki bara flottur heldur er efnið í hann ódýrt og svo er hann umhverfisvænn líka.