Þetta góðgæti lítur svo svakalega vel út að maður fær bara vatn í munninn, eins og svo margt sem kemur frá Matarlyst.
Hráefni
150 g smjör
8 stk Mars súkkulaðistykki
1 pakki appalo fylltar lakkrísreimar
200 g kornflex mulið aðeins
Aðferð
Bræðið saman við vægan hita smjör og mars súkkulaði, hrærið svo vel saman þar til samlagast. Passið að láta súkkulaðið alls ekki sjóða. Klippið lakkrísreimar niður, bætið út í pottinn. Hellið í lokin Kellogs corn flakes út í veltið vel saman með sleif. Setjið í form sem er ca 20×20 þjappið vel niður í formið. Setjið inn í ísskáp eða í kalt rými um stund skerið niður í hæfilega stóra bita, njótið en geymið þó rest í lokuðu íláti inn í ísskáp, einnig er í lagi að frysta molana.