Scott virðist nú enn og aftur vera meiri snillingurinn í að hugsa um sjálfan sig og láta Kourtney eina um börnin. Nú náðust myndir af kallinum baða sig í sólinni í Mexico með ungar bikiní klæddar stelpur á kantinum.
Kourtney hefur þó ekki haldið tilfinningum sínum alveg fyrir sig, því hún birti djúp skilaboð og Twitter um sársauka, hjartaverk og tár. Þetta er þó ekki í fyrsta skiptið sem hún talar um erfiðleika sína, þar sem í desember lét hún þessi orð falla á Twitter:
Fallegasta brosið felur dýpstu leyndarmálin. Fallegustu augun hafa grátið mestu tárunum og bestu hjörtun hafa fundið mesta sársaukann.
Sjá einnig: Kourtney Kardashian: Kynþokkafull í partíi hjá Bieber
Ekki er svo langt síðan Scott kom úr meðferð en heimildarmenn segja að hann sé alveg pottþétt ekki hættur að drekka. Það eru þó bara fáeinir dagar síðan að talað var um að fyrrum parið hafi verð mikið að daðra við hvort annað í partíi, en nú er bara spurningin hvort Kourtney taki hjarta sitt til baka og láti Scott bara sigla sinn sjó.
Sjá einnig: Kourtney og Scott knúsast í verslunarleiðangri
Á hún betra skilið? Svo virðist sem Kourtney líði ekkert sérlega vel vegna þess hvernig barnsfaðir hennar kemur fram við hana.
Sjá einnig: Kourtney og Scott knúsast í verslunarleiðangri
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.