Eftir skilnað við barnsföður sinn Scott Disick á síðasta ári, hefur Kourtney Kardashian átt erfitt með að borða þegar verstu kvíðaköstin taka yfir hjá henni. Hún segir að hún sé í raun ekki mjög kvíðin manneskja en álagið sem fylgir skilnaðinum, hefur gert það að verkum að þegar kvíðinn er mestur, verður henni það óglatt að hún verður að neyða ofan í sig mat til þess að halda sér heilbrigðri.
Sjá einnig: Eru fleiri ungir menn í lífi Kourtney Kardashian?
Hún segir einnig að hún þurfti að stunda líkamsrækt fimm sinnum í viku til þess að hjálpa sér við að halda kvíðanum frá eða í skefjum. Hún vill hvetja fólk til þess að dæma ekki ástæður fólks fyrir að fara í ræktina, vegna þess að það veit ekki hvað gengur á innra með þeim.
Fólk er mjög fljótt að dæma útlit annarra en vita í raun ekki hver ástæða er eða hvað gengur á innra með þeim.
Sjá einnig: Scott og Kourtney fara saman í bíó
Sagt hefur verið að Scott hafi farið á nokkur stefnumót með sænsku fyrirsætunni Lina Sandberg.
Sjá einnig: Justin Bieber stríðir Scott
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.