Kim Kardashian er staðráðin í að setja netið á hvolf og stimpla sig inn í hug (og hjörtu) heimsbyggðarinnar. Stúlkunni er augljóslega ekkert heilagt og þannig berar hún olíuborinn bossann fyrir öllum að sjá í vetrarútgáfu PAPER Magazine eins og HÚN greindi frá í gær.
Nú hefur PAPER birt fleiri myndir úr þættinum og Kim sparar ekkert til tökunnar, heldur stendur glaðbeitt á Evuklæðum einum fata – glottandi og glaðlynd á svip – en sjálf segir hún í viðtalinu:
I love sharing my world with people. That’s just who I am. No more, no less.
Augljóst er að Kim elskar athyglina, það eitt er á hreinu. Hér fer Kim Kardashian í öllu sínu veldi; olíuborin og kviknakin í nýjustu útgáfu PAPER undir yfirskriftinni:
Break the Internet:
An afternoon with Kim Kardashian
VARÚÐ: Þessi ljósmyndaþáttur birtist óritskoðaður í PAPER en HÚN birtir ritskoðaða útgáfu:
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.