Kylie Jenner fór með fyrrverandi mági sínum, Scott Disick aðeins á djammið til að hressa sig við eftir að hafa hætt með kærasta sínum Tyga fyrir nokkrum dögum.
Sjá einnig: Kylie Jenner: Hundleiðinleg við unga aðdáendur
Parið hætti saman nokkrum dögum fyrir Met Gala hátíðina og sagt er að Kylie hafi verið framur pirruð við Tyga fyrir að mæta, þar sem honum var aðeins boðið vegna þess að henni var boðið.
Kylie er búin að vera heima hjá mömmu sinni í gamla herberginu sínu upp á síðkastið og segir fylgjendum sínum á Snapchat að hún ætli að vera þar í nokkra daga.
Sjá einnig: Kylie Jenner: Stórglæsileg í myndatöku fyrir Puma
Mikil dramatík hafði verið í sambandinu upp á síðkastið og var það augljóst fyrir þeim báðum að sambandið gengi ekki lengur. Kylie langaði að ferðast og vera hér og þar og alls staðar, en Tyga vildi bara vera inni í stúdíói og vera rólegur.
Sjá einnig: Blac Chyna: ,,Rob Kardashian er betri í bólinu en Tyga“
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.