Kylie Jenner leiðist ekki athygli – það er eitt sem víst er. Og passar sig á því að systur hennar fái ekki meiri athygli en hún. Nýverið sat eldri systir hennar, Kendall Jenner, fyrir í myndþætti fyrir tímaritið Allure. Þar birtist mynd af henni á efnislitlum sundbol sem fékk gífurlega athygli.
Sjá einnig: Kendall & Kylie Jenner: Sakna pabba síns
Kylie var nú ekki alveg tilbúin til þess að leyfa systur sinni að eiga alla athyglina og birti mynd af sér á Instagram – í sömu sundfötum. Og myndin í djarfari kantinum.