Lesendur tímaritsins Glamour hafa valið kynþokkafyllstu karlmenn ársins 2015. Já, í febrúar. Ég er sammála ýmsu á listanum. Ekki öllu. Ég er aðallega fremur sjokkeruð yfir því að listinn telur einhverja 100 karlmenn og Gordon minn Ramsay er ekki á meðal þeirra.
1. sæti (í mínu hjarta) – Gordon Ramsay.
1. sæti (samkvæmt lesendum Glamour) – Jamie Dornan er kynþokkafyllsti maður í heimi samkvæmt tímaritinu góða. Við sjáum hann fljótlega í hinum ýmsu stellingum í Fifty Shades of Grey.
2.sæti – Benedict Cumberbatch hreppti annað sætið. Ég er ennþá að reyna að skilja af hverju.
3.sæti – Tom Hiddleston. Hann er svo sem í lagi. Margir kynþokkafyllri þó. En hvað veit ég?
Hérna má sjá listann í heild sinni.
Tengdar greinar:
Kynþokkafyllsti maður ársins var kosinn í gær
Rauðhærðir karlmenn geta VÍST verið kynþokkafullir
Athyglisverð könnun: Hvar er kynþokkafyllsta fólk heims að finna?
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.