Lamar hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsinu í Las Vegas og var fluttur með þyrlu til Los Angeles þar sem hann mun fara í meðferð og endurhæfingu. Hann þarf að læra að ganga og tala á nýjan leik eftir að hafa fallið í dá fyrir viku og hefur Khloe Kardashian ekki vikið frá hlið hans. Hún hefur fylgt honum við hvert fótmál og fór með honum í þyrlunni til LA.
Sjá einnig: Miklar framfarir hjá Lamar Odom
Lamar getur hreyft fætur og hendur en hefur enn ekki getað staðið upp og er því löng endurhæfing framundan hjá NBA stjörnunni. Þar sem nýru hans eru ekki að starfa rétt, þarf hann að vera tengdur við búnað sem hreinsar nýrun. Sagt er að Lamar hafi vaknað og sagt að hann elskaði Khloe, sama dag og hún ákvað að standa með honum í gegnum allt ferlið.
Myndir hafa komið á samfélagsmiðla af Lamar í vændishúsinu, þar sem hann hafði bæði liðið út af vegna áfengis- og vímuefnaneyslu.
Sjá einnig: Lamar Odom króaði Khloe Kardashian af og hreytti í hana ljótum orðum
Lamar liggur í rúmi í vændishúsinu með takmarkaða meðvitund: Ein vændiskvennanna tók nokkrar myndir af honum og hafa þær farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.