Makaleit.is er nýr íslenskur stefnumótavefur fyrir fólk á öllum aldri sem er alvara með að finna sér lífsförunaut.
Á Makaleit.is geta notendur sjálfir valið hverjir fá aðgang að þeirra upplýsingum. T.d. er hægt að velja að einungis karlmenn á aldrinum 25-30 ára sjá upplýsingarnar. Einnig er hægt að velja að einungis innskráðir notendur, vinir eða auðkenndir notendur fá aðgang.
Það eru Björn Ingi og kærastan hans Ása Ólafsdóttir sem standa að baki síðunni og hún.is spjallaði við þau á dögunum.
„Hugmyndin kom upp þegar ég heyrði kunningja mína tala um að það vantaði alvöru stefnumótasíðu, þar sem fólk gæti fundið maka og ekki einnar nætur gaman. Þeir höfðu reynt aðra stefnumótavefi en þar var fólk svo mikið í leita að skyndikynnum,“ segir Björn Ingi en það er skýrt tekið fram á skráningarsíðu Makaleit.is að síðan sé fyrir fólk í leit að lífsförunaut:
„Makaleit.is er stefnumótavefur fyrir fólk sem er alvara með að finna sér lífsförunaut. Ef þú ert í leit að viðhaldi eða skyndikynnum þá er þetta ekki rétti vefurinn fyrir þig.“
Einnig þarf sá sem skráir sig að haka í “Staðfesti að ég er ekki í föstu sambandi.“
Vefurinn er með sjálfvirka persónuleikapörun, þar sem notendur svara um 200 spurningum og geta svo séð hversu vel þeir passa við aðra notendur hvað varðar persónuleika, sýn á samböndum og áhugamál. „Það kom okkur mjög á óvart hversu margir hafa svarað öllum spurningunum og það segir okkur bara að fólk er í þessu af alvöru fyrst það leggur niður tíma að svara svona mörgum spurningum. í dag eru 28% kvenna með persónuleikapróf og 20% karla.“
„Einnig voru vinir mínir að kvarta undan að á öðrum vefjum voru einhverjir sem voru miklu eldri að senda þeim skilaboð, en á Makaleit.is getur notandi valið að vera bara sýnilegur ákveðnum aldurshópi, eitthvað sem 19% kvenna eru að nota“ segir Björn Ingi að lokum.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.