Hér er aðgerðin sjálf framkvæmd og vert er að vara viðkvæma við því að horfa á þetta myndbrot. Það kom mér svo á óvart hvað ég var róleg og hvað þetta var í raun lítið mál fyrir mig, þó ég hafi sleppt kæruleysistöflunni. Ég var varla lögst niður þegar þetta var búið.
Hér geturðu séð meira frá þessu ferli:
Get ég farið í augnlaseraðgerð?
Komin með fullkomna sjón á nokkrum mínútum
Augnlaseraðgerðin mun auðveldari en ég átti von á
Ef þið hafið einhverjar spurningar um aðgerðina eða eitthvað sem henni tengist megið þið senda mér spurningar á kidda@hun.is og ég mun svara þeim í samvinnu við Sjónlag.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.