Leikkonan Lea Michele söng lagið vinsæla Let It Go úr teiknimyndinni Frozen í sjónvarpsþættinum Glee en hennar flutningur af laginum hefur einnig notið mikilla vinsælda á YouTube líkt og upphaflegi flutningurinn á laginu með söngkonunni Idina Menzel.
Lagið Let It Go fjallar um það að sleppa tökunum en Lea sleppti svo sannarlega tökunum á líkama sínum í eitt skipti þegar hún flutti lagið, því hún kastaði upp.
Lea sagði frá því í viðtali í sjónvarpsþættinum Jimmy Kimmel Live að hún hafi kastað upp vegna þess að hún fékk snjókorn upp í sig á meðan hún söng lagið og svelgdist á. Leikkonan sagði að það væri til myndband af þessu atviki einhvers staðar en neitaði að mæta með upptökuna í viðtalið.
Tengdar greinar:
Talsmaður Lea Michele biður fólk að virða einkalíf hennar á þessum erfiða tíma
Glee stjarna slítur trúlofun og Kim Kardashian toppar Beyonce
Lítil stelpa verður öskuvond þegar mamma hennar hlær af Frozen flutningi hennar
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.